Ómissandi fólk.
Allsnakinn kemuru í heiminn
og allsnakinn ferðu burt
frá þessum steindauðu hlutum
sem þér fannst þú hafa dregið á þurrt.
Og eftir lífsins vegi
maður fer það sem fært er
En veistu á miðjum degi
dauðinn tekur mál af þér.
Ofmetnastu ekki
af lífsins móðurmjólk
Í kirkjugörðum heimsins
hvílir ómissandi fólk.
Já heil og sæl
Þá er nýja árið skriðið á fullt,takk kærlega 2009.Er að vinna mína 3 næturvakt á þessu ári og komst að því að það er mús/mýs hér í húsinu alveg hreint ÆÐISLEGT! mér til mikilla gleði og ég kemst engan veiginn hjá því að glápa á gólfin alla nóttina hehe.Ég hef sem betur fer ekki séð neina ennþá,en held að ef ég sæji eina þá myndi ég sjálfsagt æpa aðeins og hoppa uppá stól þó svo að það sé nú lítil tilgangur með því ,því jú mýs geta hoppað líka Annars er nú bara búið að vera rólegt og gott hér.
Hvernig voru svo áramótin hjá ykkur,voru strengd einhver heitt þetta árið?
Ég skemmti mér vel með henni Guðnýju minni,við dönsuðum allavegana alveg helling!Þrátt fyrir mikla þreyttu enda var maður ekki lengi að sofna þegar heim var komið.Ég strengdi nú engin heit þetta árið frekar en öll hinn.Veit bara hvað ég vil gera og hvað ég ætla að gera...
16 vikna átakið mitt byrjar svo á mán úffff ég vil gjarnan fá að hitta þann aðila sem sagði að hreyfing væri holl og góð fyrir mann piffff.En svo að maður verði nú ekki með spikið dragandi á eftir sér ,er best að reyna að drattast eitthvað áfram á hlaupabrettinu og taka aðeins á lóðunum já kannski að ég splæsi á mig 1-2 góðum kvartbuxum og flottum íþróttabol í tilefni þess,ég verð nú jú að vera svolítið svöl á því í ræktinni líka.Já og kannski ég drífi mig í því að græja góð lög á ipodinn minn,hef ætlað að gera það ansi lengi hehe.
Enn segi þetta gott núna,þurkarinn farinn að pípa á mig.Best að halda áfram að vinna eitthvað á meðan maður hefur ennþá vinnu.
Hafið það sem allra best,þar til næst
xoxo ykkar ólöf Rut.
Flokkur: Lífstíll | 8.1.2009 | 03:13 (breytt kl. 03:15) | Facebook
Tenglar
Blessuðu börnin
- Kristín Rae Dóttir Hrafnhildar
- Eydís Lára Dóttir Dísu
- Óskírður Önnuson sonur Önnu Rúnar
- Ivan Freyr frændi Ólafar
- Margrét, Elín og Jón Páll frændi/frænkur Ólafar
- Camilla Rós frænka Ólafar
- Patrik Smári frændi Ólafar
Aðrir bloggarar
- Lísbet Reykjalín Mágkona Rutar
Jan. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 452
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.